Myndasafn

Þegar verið er að setja á vefsíðu mikið magn af myndum er gott að nota Myndasafnið (photogallery) í það.  Um er að ræða kerfiseiningu þar sem hægt er að búa til flokk og setja myndir í þann flokk.  Stuðningur er við að mynda eins marga flokka og vilji er fyrir.  Þegar búið er að stofna flokkana er hægt að bæta við einni og einni mynd en einnig er hægt að senda inn margar myndir í einu.  Það kemur sér sérstaklega vel ef myndirnar skipta hundruðum.  Ekki þarf að hafa áhyggjur af stærðum myndanna og hlutföllum því að kerfið sér um að minnka myndirnar niður í rétta stærð.  Einnig er hægt að skrifa texta með hverri mynd sem birtist sem birtist á netinu.  Þegar þarf að raða myndum upp á nýtt eða eyða út myndum er hægt að kalla upp myndrænt viðmót á myndasafninu þannig að auðvelt sé að hafa yfirsýn yfir safnið.

Helstu atriði:
  • minnkar myndir sjálfkrafa
  • fjöldasendingar í einni aðgerð
  • texti við hverja mynd
  • hægt að búa til tags við hverja mynd

 

 

Laugarvegur 25 / 3.hæð / 101 Reykjavík / IcelandTel +354 535 4900 / Fax + 354 535 4919 / info@veldi.is