
Atburðardagatal er notað til að setja inn viðburði fram í tímann og við það sést viðburðinn á síðunni þar til hann er liðinn. Þetta er sérstaklega þæginlegt fyrir innranet starfsmanna sem og fyrirtæki sem hafa mikið á sinni dagskrá yfir árið. Auk þess er gott að nota þetta í tenglum við dagatal yfir daginn eins og á líkamsræktarstöð ofl. Atburður er skráður inn í dagatala útlit í CurioWeb. Þar er hægt að skrá inn einstakann atburð eða láta hann endurtaka sig. Hægt er að skrá niður mikilvægi atburðar og forrita að aðeins t.d. mikilvægustu atburðirnir sýni áminningu á forsíðu.
helstu eiginleikar- hægt að stilla mikilvægi atburðar
- endurtekning atburðar, daglega og vikulega
- stilling á líftíma atburðar