Inngangur Hingað til höfum við boðið notendum CurioWeb að vera með skyndikannanir á vefsíðum sínum. Þá er um að ræða kannanir sem sýna niðurstöðuna eins og hún er hverju sinni þegar gestur á vefsíðunni er búinn að svara. Okkur fannst tími kominn að stíga skrefinu lengra og búa til fullkomið kannanakerfi þar sem stuðst er við að svara spurningum á mismunandi vegu þannig að auðvelt sé að taka saman niðurstöðurnar í lesilega skýrslu sem síðan væri hægt að vinnan nánar úr.
Tilgangur Litið var á þetta verkefni ekki eingöngu sem viðbót við CurioWeb heldur einnig sem kerfi sem stendur eitt og sér. Þannig væri hægt fyrir fyrirtæki, nemendur og stofnanir að fá aðgang að kerfinu aðeins til að reka setja upp kannanir.
Að búa til könnun Viðskiptavinurinn fær aðgang að kannanakerfinu í gegnum CurioWeb. Hann fer þar inn og býr sjálfur til könnun. Hann skilgreinir hana út frá ýmsum stillingum sem höfðar best til þeirrar könnunar sem skal senda út. Stillingarnar eru m.a. Þegar könnunin hefur verið stofnuð þá þarf að setja inn spurningar og svör.
Tegund spurninga og svör Svör geta verið mismunandi af gerð í skoðanakönnunum. Þetta fer að mestu eftir því hvort svaranda sé fjálst að setja eigið svar, velja úr fyrirfram skilgreindum svörum eða að svarið eigi að vera á ákveðnu tímabili eða formi. Hér að neðan fara þær tegundir af svörum sem stuðst er við í CurioSurvey kerfinu.
Val Þegar um val er að ræða þá er fyrirfram búið að skilgreina einhvern möguleika á svörum þar sem svarendur geta aðeins valið úr þeim hóp. Hægt er að skilgreina í kerfinu hvort viðkomandi þurfi nauðsynlega að svara spurningunni til að halda áfram eða geti sleppt henni. Sjá dæmi hér að neðan:
P.s.
Einstaklega gott að nota þennan möguleika þar sem birtast þæginlegar niðurstöður úr þessu í skýrslunni í lokin. Þá er hægt að sjá prósentuskiptinguna á svörunum.
Fylki Er í rauninni mjög svipað “Val” spurningunum þar sem settar eru saman margar valspurningar í eina töflu. Þá eru fyrirframskilgreind svör sem eiga við allar spurningarnar sem eru settar fram í töflunni samanber dæmið hér að neðan.
P.s.
Fylgi er leið til að afgreiða margar spurningar í einu. Það hefur góð áhrif á próftakandann þar sem hann getur afgreitt þetta á styttri tíma.
Opið svar – texti Um er að ræða frjáls texti sem hægt er að setja inn í könnunina.
P.s.
Gott er að nota textasvarið þegar um er að ræða hugmyndavinnu (brainstorming) t.d. ef á að stinga upp á nýjunum í starfi eða námi ofl.
Opið svar – dagsetning Spurning þar sem krafist er
Opið svar – tala Val með opnu svari
Val felligluggi Niðurstöður Þegar könnunin hefur að fullu verið tekin þá sér kerfið um að taka niðurstöður saman í skýrslu. Í rauninni er hægt að kalla þessa skýrslu fram hvenær sem er á ferlinu en þá með mismunandi niðurstöðum eftir því hversu margir eru búnir að svara hverju sinni.