CurioWeb

Vefumsjónarkerfi Annars veldis ehf er sérstaklega vel til þess fallið að halda efni vefsins alltaf nýju og fersku. Hugbúnaðurinn krefst ekki neinnar forritunarþekkingar og gerir þ.a.l. hverjum sem er mögulegt að uppfæra og viðhalda vefnum á auðveldan hátt, án aðstoðar tæknimanna.

kerfið hentar vel markaðssetningu á Internetinu þar sem sem öll uppbygging og forritun miðar að því að síðan sé sýnileg á helstu leitarvélum.  Um er að ræða lýsandi slóðir á undirsíður, brauðmolar (ef hönnun krefst þess), aðgengilegt HTML fyrir leitarvélar auk þess sem stuðningur er við skráningu stikkorða (metatags) og lýsingar (description tags) í CurioWeb. Hjá Öðru veldi ehf hefur verið lögð sérstök áhersla á aðgengismál fyrir hreyfihamlaðra og sjónskertra við uppsetningu á vefsíðum.

Grunnkerfið

Grunnkerfið er sá grunnur sem hver heimasíða verður að hafa til að geta notað CurioWeb. Þá er kerfið sett upp með grunnþarfir í huga við rekstur heimasíðu. Helstu eiginleikar grunnkerfisins er:

    • Veftré – hægt að stofna undirsíður og nota innbyggðann ritil við innsetningu á efni í síður veftrésins.
    • Notendaviðmót  – sem er einfalt og skýrt
    • Notendastjórnun –  öflugar notendastýringar fyrir réttindi mismunandi umsjónar-aðila við efnisinnsetningu.
    • Ritillinn – þar sem auðvelt er að setja inn texta, myndir, hreyfimyndir, flash ofl beint inn á vefinn án aðstoðar tæknimanna. Auðvelt er að vinna í myndum beint í ritli þar sem grunnstillingar koma strax upp við val myndar.
    • Uppfærslur – reglulegar uppfærslur á kerfinu
    • Skráarkerfi – til geymslu á myndum, skjölum, hreyfimyndum ofl.
    • Innbyggður teljari – telur heimsóknir á forsíðu
    • Ruslakarfa – hægt að endurheimta gögn án aðstoðar tæknimanna.
    • Aðgerðalisti – yfirlit yfir allar aðgerðir frá upphafi
    • Innskráningarlisti – yfirlit yfir allar innskráningar frá upphafi
    • Fyrirspurnarkerfi – hægt að senda skilaboð á starfsmenn Verksala en þeir fá sendinguna sem tölvupóstur.

Við grunnkerfið er svo hægt að bæta við einingum sem hafa verið forritaðar inn í CurioWeb umhverfið. Þessar grunneiningar eiga að þjóna þeim aukaþörfum sem notendur CurioWeb hafa en þær þarfir geta verið mismunandi.

Viðbótareiningar

    • Markpóstkerfi – HTML póstkerfi þar sem er bæði stuðningur fyrir að senda á ákveðna fyrirfram skilgreinda markhópa og tímastillingu á sendingum.
    • Fréttakerfi – með tímastillingu þar sem hægt er að skilgreina líftíma frétta og að frétt haldist inni án tímamarka.
    • Listakerfi – stjórntæki á skipulögðum gögnum t.d. starfsmannalisti, eyðublöð, tjaldsvæði, bensínstöðvar ofl.
    • Skoðanakannanir – hægt að stofna kannanir á einfaldann hátt og sjá niðurstöðurnar í kökuriti. Niðurstöður kannana er geymdar í grunninum.
    • Spjallþráðakerfi – kerfi þar sem hægt er að mynda þræði á vefnum þar sem notendur vefsins geta skipst á skoðunum.
    • Myndasafn – Hægt að stofna ný myndasöfn, senda myndir þar inn og skrifa athugasemdir við hverja mynd.
    • Atburðadagatal – Miðlæga skráningu atburða sem hægt er að birta á innraneti sem og ytraneti.
    • Vefborðarkerfi – hægt að skipta í flokka út frá skilgreindri staðsetningu vefborðans. Hægt að stjórna uppitíma vefborðans.
    • Mobile – hægt er að gera vefinn farsímavænann þannig að hægt sé að skoða hann í farsíma. Þá er komið í veg fyrir að vefurinn sé þungur í keyrslu með því að strípa hann stórum myndum og hönnun.


Klapparstíg 25-27 / 6.hæð / 101 Reykjavík / IcelandTel +354 535 4900 / Fax + 354 535 4919 / info@veldi.is