
Um er að ræða þær viðbætur sem hægt er að fá bætt við
Grunnkerfið. Viðbæturnar eru oftast til að sinna ákveðnum þörfum sem á ekki endilega við alla viðskiptavini. Í þróunarvinnunni og með nýjum viðskiptavinum verða til nýjar kerfisviðbætur en á þann hátt þróast kerfið í heild sinni áfram. Það kemur fyrir að einhver kerfisviðbót verði það sálfsagður hlutur af kerfinu að hann ætti heima í grunnkerfinu. Þá er viðkomandi kerfisviðbót bætt þar inn þar sem að hún er hætt að sinna einhverjum ákveðinum heldur þarf að sinna öllum.
Í kerfisviðbætum eru algengir hlutir eins og
fréttakerfi,
viðburðardagatal,
listakerfi,
markpóstur,
myndasafn,
Vefborðar,
Skoðanakannanir,
Spjallþráðakerfi,
SMS fjöldapóstur,
CurioSurvey,
Innsláttarform.