Lyfja.is í nýtt útlit

lyfja.is hefur fengið glæsilegt nýtt útlit en nýja vefsíðan er hönnuð hjá Íslensku auglýsingastofunni. Hönnunin einfaldar verulega gagnaleit og dregur fram þau atriði sem eru talin mikilvægust gestum vefsíðunnar. Þar má helst nefna kort af Íslandi sem blasir við á forsíðu en þar er hægt að sjá staðsetningar allra Lyfjaverslana á landinu auk þess sem hægt er að smella á nafn tiltekins apóteks til að fá nánari upplýsingar um það. Einnig eru 4 flottar flýtileiðir frá forsíðu á lyfjabókina, hjúkrunarþjónustu, spurt og svarað og upplýsingar um lyfjaskömmtun. Allt útlitið er einkar smekklegt, stílhreint og vel upp sett. Vefsíðan heldur sömu virkni og fyrir breytingar og er áfram hýst hjá Öðru Veldi og stjórnað með hjálp Curioweb vefumsjónarkerfisins.

 
Við hjá Öðru Veldi viljum óska Lyfju til hamingju með glæsilega nýja útlitið. 

Verkefnastjórn: Hákon Skúlason
Hönnun: Egill Þórðarson hjá Íslensku auglýsingastofunni
Forritun: Sigþór Ingi Sigþórsson

Laugarvegur 25 / 3.hæð / 101 Reykjavík / IcelandTel +354 535 4900 / Fax + 354 535 4919 / info@veldi.is