Safe Travel með vefsíðu

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur nú opnað glæsilega vefsíðu á slóðinni www.safetravel.is. Vefsíðan var forrituð hjá Öðru Veldi og notast vefstjórar við Curioweb vefumsjónarkerfið til að stjórna efni síðunnar.

Vefsíðan www.safetravel.is er rekin af Slysavarnafélaginu Landsbjörg og er hluti af stærra verkefni sem einfaldlega kallast Safetravel. Þar taka höndum saman fjöldi aðila, opinberar stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar sem hafa það að markmiði að bæta forvarnir og minnka slys í ferðamennsku og ferðaþjónustu hér á landi. Verkefninu er stýrt frá skrifstofu Slysavarnafélagins Landsbjargar en að því koma fleiri enda eru innan raða félagsins fjöldi einstaklinga með yfirgripsmikla þekkingu á landinu og ferðalögum við ýmsar aðstæður.

Vefsíðan er á nokkrum tungumálum og er hvert tungumál skipt í Sumar og Vetur. Þannig geta ferðamenn lesið upplýsingar um aðstæður, færð á vegum ofl nytsamlegt sem á við hvort sem um ferðalag að vetri eða sumri er að ræða. Gestir síðunnar geta einnig fyllt út ferðaáætlun á vefsíðunni sem sendist á Landsbjörg og á netfang ferðamannsins. www.safetravel.is er kærkomin viðbót við hinn sívaxandi ferðamannaiðnað á Íslandi og Annað Veldi ehf óskar Slysavarafélaginu Landsbjörg og samstarfsaðilum innilega til hamingju með glæsilega vefsíðu.

Laugarvegur 25 / 3.hæð / 101 Reykjavík / IcelandTel +354 535 4900 / Fax + 354 535 4919 / info@veldi.is