Lyfja hf velur Curioweb

Lyfja hf hefur valið vefumsjónarkerfið Curioweb 3.0 til þess að stjórna heimasíðu sinni www.lyfja.is. Síðan fékk auk þess andlitlyftingu og ýmsar breytingar voru gerðar á uppbyggingu hennar til þess að auðvelda vefstjórum vinnu sína. Lyfja er einnig með vinsælt innranet fyrir starfsmenn sína hjá Öðru veldi, þar sem þeir geta deilt upplýsingum, skoðað myndagallerí, spjallað ofl. Þetta verkefni fyrir Lyfju auk innranetsins var með stærri verkefnum sem fyrirtækið hefur tekið að sér á sviði vefsíðugerðar vegna nákvæmrar forritunarvinnu og þess mikla magns af ítarlegu fræðsluefni sem á síðunni er að finna.

Á síðunni eru nákvæmar upplýsingar um lyf í lyfjubókinni, þar sem hægt er m.a. að finna lyf eftir lögun, lit og áletrun lyfsins. Auk þess er hægt að lesa sér til um fyrirtækið, kynna sér einkenni ýmissa sjúkdóma, spyrja sérfræðinga spurninga varðandi heilsufar og sækja um vinnu í einhverri af þeim mörgu glæsilegu verslunum sem Lyfja hf rekur um allt land.

Klapparstíg 25-27 / 6.hæð / 101 Reykjavík / IcelandTel +354 535 4900 / Fax + 354 535 4919 / info@veldi.is