Auður Capital opnar vefsíðu

Fjárfestingafyrirtækið Auður Capital hefur opnað sína fyrstu vefsíðu í Curio Web 3.0. Einföld og stílhrein hönnun endurspeglar sérstöðu fyrirtækisins en það er rekið af sterkum konum með mikla reynslu á viðskiptasviðinu. Á síðunni er hægt að fræðast um hugmyndafræði fyrirtækisins, þjónustuna sem það býður upp á, stofnendur og starfsmenn þess og einnig er hægt að hafa samband í gengum þar til gert innsláttarform. Síðan er á ensku og íslensku.
Annað veldi ehf óskar Auði Capital til hamingju með glæsilega vefsíðu fyrir glæsilegar konur.

Klapparstíg 25-27 / 6.hæð / 101 Reykjavík / IcelandTel +354 535 4900 / Fax + 354 535 4919 / info@veldi.is