
Leiðtogaauður hefur opnað glæsilega vefsíðu á slóðinni
www.leidtogaaudur.is. Á síðunni er hægt að fræðast um starf félagsins, tilgang þess og markmið auk þess sem hægt er að lesa fréttir og greinar og einnig hafa samband í gegnum þar til gert innsláttarform svo eitthvað sé nefnt. Jafnframt aðalsíðunni opnaði félagið einnig lokað innranet handa sínum félögum þar sem þeim er frjálst að spjalla, skiptast á upplýsingum, senda skilaboð sín í milli ofl.
Leiðtogaauður er félagsskapur kvenna í leiðtoga- og stjórnunarstöðum í íslensku viðskiptalífi. Félaginu er ætlað að efla tengsl þeirra í milli og einnig að vera öðrum konum hvatning. Í dag eru um 80 konur í félaginu.