Nordicgames.is í CurioWeb

Smelltu hér til að heimsækja síðu Dreifingaraðilinn, leyfissalinn og framleiðslufyrirtækið Nordic Games hefur slegist í hóp viðskiptavina Annars Veldis með nýrri vefsíðu þar sem spilum og leikföngum fyrirtækisins eru gerð góð skil. Nordicgames er með umboð fyrir fjöldann allan af spilum og leikföngum á Norðurlöndunum en ný lönd hafa verið að bætast í hópinn og núna síðast England og Írland.

Á síðunni er að finna ítarlegan vörulista sem skiptur er niður í flokka eftir tegund, fréttir úr heimi leikja og púsluspila, ýmsan fróðleik um fyrirtækið, dreifingaraðila og útsölustaði. Auk þess er hægt að senda fyrirspurn á fyrirtækið og skrá sig á þar til gerðan póstlista. Tenglalista er einnig að finna á síðunni en er honum ætlað að tengja viðskiptavini Nordic Games betur við heim borðleikja og púsluspila. Hægt er að skoða vefsíðuna á íslensku og ensku.

Við óskum Nordicgames til hamingju með glæsilega vefsíðu!

Klapparstíg 25-27 / 6.hæð / 101 Reykjavík / IcelandTel +354 535 4900 / Fax + 354 535 4919 / info@veldi.is