Nú hefur bílamarkaðurinn Bílar og Vagnar fengið sér vefsíðu hjá Öðru Veldi ehf. Fyrirtækið selur farartæki ýmiss konar þ.á.m. notaða bíla, húsbíla og hjólhýsi. Bílar og vagnar keypti rekstur Bílamarkaðsins í byrjun árs 2008 og flutti á Smiðjuveg 46e Kópavogi.
Á vefsíðunni geta viðskiptavinir skoðað öll þau farartæki sem eru til sölu og nákvæmar upplýsingar og myndir af hverju og einu. Auk þess geta þeir lesið fréttir, lesið um fyrirtækið og haft samband. Einnig er hægt að lesa um viðburði um allt land flokkað eftir landshlutum og tjaldstæði flokkuð eftir landshlutum. Hver tjaldstæði er með nákvæmar upplýsingar og myndir. Á forsíðu er lítil veðurspá sem segir til um hitastig, vætu ofl. Hægt er að velja hluta af landinu til að kanna veðurfar þar.
Fyrst um sinn verður síðan eingöngu á íslensku en síðar munu fleiri tungumál bætast við.