Nú hefur Fjölbrautaskóli Suðurlands opnað vefsíðu til heiðurs rokksöngleiknum
Til Sölu sem sýndur verður á Hótel Selfossi en verkið er frumsýnt í kvöld. Annað Veldi tengdi vefsíðuna við vefumsjónarkerfið curioweb til að auðvelda nemendum að setja efni á hana, en síðan er hvorki hönnuð né útlitsforrituð hjá öðru veldi.
Annað Veldi óskar Leikfélagi Fjölbrautaskóla Suðurlands innilega til hamingju með þetta metnaðarfulla verkefni og hvetur alla til að skella sér á Selfoss í leikhús!