
Nú hefur Nonnabiti bæst í hóp viðskiptavina Annars Veldis með nýrri og glæsilegri vefsíðu á slóðinni
www.nonnabiti.is Á síðunni er hægt að skoða matseðil Nonnabita, lesa um fyrirtækið, sjá staðsetningu þess á korti, skrá sig á póstlista og taka könnun svo eitthvað sé nefnt. Atvinnuumsókn er einnig að finna á síðunni og hægt er að hafa samband við fyrirtækið í gegnum þar til gert innsláttarform en vefstjóri fær skilaboðin sem tölvupóst.
Nonnabiti var stofnaður þann 3. október 1993, af þeim Jóni Guðnasyni og Björk Þorleifsdóttur. Boðið hefur verið upp á mat úr 1. flokks hráefni sem fallið hefur vel í kramið á viðskiptavinum, staðurinn dafnað vel á þeim 15 árum sem hann hefur verið starfræktur enda rekinn með hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi.