Nú hafa Leitarhundar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar fengið sér nýja vefsíðu á slóðinni
www.leitarhundar.is en félagið var áður með vefsíðu á sama léni. Á síðunni er hægt að lesa fréttir frá félaginu og ýmsan fróðleik, skoða útköll aftur í tímann í lista sem raðaður er í tímaröð, lesa greinar frá meðlimum ofl. Einnig er hægt að skoða myndir í þar til gerðu myndasafni en þar er söfnum flokkað niður í ár.
Auk ytri vefsíðu var einnig sett upp lokað
innranet sem einungis meðlimir Leitarhunda fá aðgang að. Á þessu lokaða svæði geta meðlimir spjallað á
spjallþráðum, skoðað fréttir, tekið þátt í könnun, skoðað myndir í myndasafni og kíkt á þá atburði sem framundan eru en þeim er raðað í tímaröð eftir
atburðardagatali. Meðlimir geta einnig sent skilaboð á aðra meðlimi á lokaða svæðinu sett mynd og upplýsingar á eigin prófíl ofl.
Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar er samstarfs og fagvettvangur fyrir björgunarsveitarmenn sem sérhæfa sig á sviði þjálfunar hunda til leitar- og björgunarstarfa.
Verkefnastjórar: Hákon Skúlason og Sigrún Huld Skúladóttir
Forritun: Sigþór Ingi Sigþórsson.
Annað veldi ehf óskar Leitarhundum til hamingju með nýju síðuna.