Easy Living með vefsíðu

Hjónakornin Spessi og Áróra hafa ákveðið að leigja út nýuppgerða íbúð í glæsilegu timburhúsi að Barónsstíg 16. Útleigan er hugsuð aðallega fyrir ferðamenn sem vilja vera í friðsælu umhverfi sem er samt miðsvæðis í Reykjavík. Í stíl við hlýlegt húsnæðið, umhverfið og þann lífsmáta sem því fygir að hafa aðgang að heilli íbúð og geta td eldað heima fyrir er íbúðin kölluð Easy Living. Til að kynna íbúðina hefur Annað Veldi hannað og forritað vefsíðu á slóðinni www.easyliving.is - en þar er hægt að skoða upplýsingar um íbúðina á ensku og íslensku, skoða myndir, hafa samband ofl.

Verkefnastjórn: Sigrún Huld Skúladóttir
Forritun: Sigþór Ingi Sigþórsson

Klapparstíg 25-27 / 6.hæð / 101 Reykjavík / IcelandTel +354 535 4900 / Fax + 354 535 4919 / info@veldi.is