Fyrirtækið Annað Veldi
Annað Veldi ehf. er hugbúnaðarfyrirtæki með aðsetur í hjarta Reykjavíkur. Fyrirtækið hefur mikla reynslu í gerð stórra veflausna svo og hönnun á hugbúnaði fyrir fjármála- og orkugeirann. Í veflausnum er notast við vefumsjónarkerfið CurioWeb sem nú er í notkun hjá liðlega 50 fyrirtækjum. Miðasölukerfið www.midi.is er í notkun hjá öllum stærstu tónleika- og sýningastöðum hér á landi en var selt til fyrirtækisins Nýsir í desember 2005. Hyena er hermilíkan sem er unnið fyrir Landsvirkjun. Rio.is ehf var stofnað í kring um hugbúnað Room Service í London en síðan selt Midi.is ehf í febrúar 2006. Annað Veldi er auk þess Microsoft Certified Partner og endursöluaðili fyrir besturnarhugbúnað frá Frontline Systems.
Starfsemi Annars veldis ehf er í dag á tveimur sviðum:
Raforkumál
Annað veldi ehf hefur hannað nýja útgáfu af hermilíkani af raforkukerfinu í samvinnu við Landsvirkjun. Líkanið hefur hlotið vinnuheitið Olv5: Orkulíkan Landsvirkjunar útgáfa 5. Líkanið notar nýjustu aðferðir í stærðfræðilegri bestun til að reikna út hagkvæmustu stjórnun vatns- og jarðgufuvirkjana í samtengdu raforkukerfi. Samstarf er hafið við Verkfræðistofnun Háskóla Íslands og Samorku um greiningu á samkeppnismarkaði fyrir raforku í tengslum við frumvarp um ný raforkulög sem hafa verið lögð fram á á Alþingi. Með nýjum raforkulögum verður stuðlað að því að skapa forsendur fyrir samkeppni í vinnslu- og viðskiptum með raforku hér á landi. Miklir erfiðleikar hafa orðið víða erlendis við skipulagsbreytingar af þessu tagi og má nefna dæmi frá Kaliforníu, Nýja Sjálandi og Brasilíu. Með varkárum og markvissum aðgerðum verður reynt að stuðla að því að ný raforkulög muni leiða til framfara hér á landi.
Curio Web
Vefumsjónarkerfið CurioWeb er hannað af Sindra Má Finnbogasyni. Hann var einn af aðalforriturum að vefumsjónarkerfunum Vefþór og LiSA, sem einnig eru í boði á markaði í dag. Með CurioWeb var stigið skref til einföldunar en jafnframt eflingar á virkni vefja. Lögð er áhersla á það að viðskiptavinur verði virkur þátttakandi í hönnun og umsjón með eigin vef. Einfaldleiki CurioWeb fær notendur til þátttöku í hönnunarstarfinu langt umfram það sem gerist með önnur vefumsjónarkerfi á markaði hér á landi í dag. Einfalt og öflugt er rétta leiðin.