Starfsmenn

Annað veldi ehf leitast eftir að skapa hvetjandi starfsumhverfi sem veitir jafnframt áskorun í starfi. Starfsmenn eru ráðnir inn eftir nákvæmu ráðningarferli þar sem stuðst er við vinnugreiningu, þarfagreiningu fyrirtækisins, mati á umsækjanda bæði út frá reynslu og getu í starfi. Þessi aðferð hefur reynst vel við að finna rétta umsækjandann sem passar bæði inn í verkefnin sem og starfsanda fyrirtækisins. Lykilatriðið er að starfsmenn finni fljótt og örugglega árangur síns erfiðis og njóti góðs af góðri frammistöðu.
Hákon Skúlason
Framkvæmdarstjóri

Hákon er með meistaragráðu í viðskiptafræði (MBA) og bókmenntafræðingur. Hákon hefur tveggja ára reynslu í hugbúnaðargeiranum en tók við stöðu framkvæmdastjóra haustið 2005 en hafði áður gengt stöðu sölu- og markaðstjóra. Hákon hefur auk þess töluverða reynslu í auglýsingamennsku og listastarfsemi.

Skúli Jóhannsson
Verkfræðingur

Skúli hefur reynslu af hugbúnaðargeiranum frá 1975. Stofnandi Strengs verkfræðistofu og frumkvöðlafyrirtæki í hugbúnaðargerð á Íslandi. Hann er einnig stofnandi Annars veldis e.hf.

Sigrún Huld Skúladóttir
verkefnastjórn og uppsetning

Sigrún er með BfA gráðu í leiklist frá Listaháskóla Íslands. Í náminu hlaut hún mikla þjálfun í framkomu, skapandi hugsun og úrvinnslu hugmynda. Hún hefur einnig töluverða reynslu í þjónustustörfum og sölumennsku ýmiss konar.

Laugarvegur 25 / 3.hæð / 101 Reykjavík / IcelandTel +354 535 4900 / Fax + 354 535 4919 / info@veldi.is