
Annað veldi hefur undanfarið einbeitt sér að lausnum sem eru sérstaklega ætlaðar farsímanotendum. Flestir viðskiptavina Annars veldis hafa notað lausnir fyrirtækisins til að koma sér á framfæri í tölvum, en töluverð eftirspurn hefur verið á að koma því efni einnig á framfæri í farsímum. Það má helst rekja til þess að von er á öflugri 3ju kynslóðavæðingu á Íslandi. Kostir þess kerfis er meiri nethraði til farsíma og að símarnir verða sítengdir nánast um allt land.
Hér er samt ekki um einfalda aðgerð að ræða.
Gallar • Skjáir á farsímum geta verið margbreytilegir og stundum þarf maður að þóknast einni tegund á kostnað annarrar.
• Farsímar eru misgóðir í það hlutverk að vafra um netið því flestir símar eru hannaðir út frá hringingu.
• Enginn er að gera þetta almennilega, óplægður akur.
Kostir • Eykur aðgengi almennings að upplýsingum.
• Opnar möguleika fyrir fólk á faraldsfæti.
• Eykur notkun á farsímum sem upplýsingatæki í stað þess að vera eingöngu samskiptatæki.
Annað veldi ehf hefur, að beiðni núverandi viðskiptavina, sett upp tengingu við CurioWeb kerfið, sem stjórna vefsíðunum þeirra þannig að það myndi síðu í farsíma (mobile) þar sem allt er einfaldað eftir fremsta megni. Auk þess hefur verið unninn að lausn við að senda fjölda SMS.
Sem stendur hafa mobile lausnir Annars veldis ehf gert eftirfarandi kleyft
- Leita að flísum í flísaleitarvél
- Fá fréttir af flísum
- Fá upplýsingar um veður
- Fá fréttir á ensku um ferðamannabransann
- Lykilupplýsingar fyrir ferðamenn
- Fá Framsóknarfréttir sem smáskilaboð
Þetta er aðeins byrjunin, en eftir því sem þarfir viðskiptavina okkar aukast í þessa átt, þeim mun fleiri mobile lausnir munu líta dagsins ljós.