Innranet


Bjóðum upp á sérstakt tilboð á innraneti í tilbúnu hönnuðu útliti með öllum þeim stillingum og möguleikum sem gerir félagasamtökum eða fyrirtækjum kleift að hafa lifandi og örugg samskipti á lokuðu svæði.

Stofnkostnaður uppsetningar er 150.000 kr
Mánaðargjöld: 15.000


Núverandi viðskiptavinir eru Lyfja hf, Flugfreyjufélagið, Ísaksskóli ofl.


Samskipti á milli aðila innan fyrirtækja og félagasamtaka er lykilatriði í því að rekstur gangi vel fyrir sig. Aukin samskipti geta komið í veg fyrir misskilning, tvíverknað og haldið í góða liðheild. Lokað innranet getur aukið á þessi samskipti þar sem að ákveðin hópur getur haft samskipti sín í milli á óheftan hátt. Upplýsingaflæðið verður hraðvirkara og tengslin verða sterkari.

Um innranetið

Innranet Annars veldis ehf er lokað vefsvæði þar sem aðeins skráðir notendur fá aðgang. Umsjónarmenn síðunnar sjá um aðgangsstýringuna auk þess sem þeir sjá um að uppfæra innranetið af efni. Nýskráning vefnotenda er gert á einfaldan hátt í gegnum curioWeb vefumsjónarkerfið en þar er einnig öllu innranetinu stjórnað. Innranet getur verið mismunandi rétt eins og starfsmannahópar fyrirtækja. Innranetslausnin er unnin sérstaklega út frá þörfum hvers fyrirtækis eða félagasamtaka fyrir sig allt eftir þörfum. Fyrst er unnin þarfagreining þar sem tekið er saman hvaða hvaða óskir eru við nýtt innranet og svo er reynt að uppfylla þau skiliyrði með þær lausnir sem fylgja með CurioWeb kerfinu. Þegar innranetið er tilbúið er það afhent til notkunar. Töluverð reynsla hefur komið á kerfið þar sem á annað þúsund notendur eru nú þegar byrjaðir að nota lausnina.

Helstu eiginleikar hinnar tilbúnu lausnar:

  • Deila trúnaðargögnum á öruggan hátt
  • Skipulögð skráning á trúnaðargögnum
  • Halda utan um myndasafn fyrirtækis í gagnabanka - Hvert myndasafn ber titil og hægt er að skrifa lýsingu við það.
  • Mínar stillingar vefnotenda sem er beintengt við upplýsingar starfsmannalista. - Hver notandi getur t.d. breytt lykilorðinu sínu, upphalað mynd í prófílinn sinn og sett inn ýmsar upplýsingar um sig sem aðrir notendur innranets geta séð.
  • Þátttaka í spjallþráðum undir nafni og mynd - Vefstjórar búa til umræðuhópa (t.d. Hugmyndabanki eða Almennt). Notendur geta svo búið til umræðuþræði sjálfir innan hvers umræðuhóps og spjallað sín á milli.
  • Hægt að skilgreina réttindi hvers vefnotanda - Vefstjórar hafa fulla aðgangsstýringu og geta þannig ráðið hver hefur hvaða réttindi í umræðuhópum. Þannig getur einn notandi haft full aðgangsréttindi að einum hóp, verið bannaður í öðrum og haft eingöngu lesréttindi í þriðja.
  • Mínir þræðir í spjallkerfi þar sem hægt er að breyta og eyða innleggum - Upp kemur listi yfir alla þá þræði (umræður) sem notandi hefur annað hvort stofnað eða tekið þátt í. Með þessu móti getur hver notandi fylgs vandlega með þróun þeirra spjallþráða sem hann/hún er hluti af.
  • Viðburðardagatal í fréttastíl - Hægt að skilgreina lengd atburðs en einnig hvort hann endurtekur sig (vikulega t.d.). Mögulegt er einnig að setja inn lýsingu fyrir hvern atburð, mynd/ir, tónlist ofl.
  • Vefborðakerfi með birtingarstillingar og tímastillingar - Hægt að setja inn marga vefborða og láta þá skiptast út. Vefborðakerfið styður einnig FLASH skrár.
  • Upplýsingar um veður í dag og næstu daga.
  • Afmæliskerfi beintengt við starfsmannalista - Birtir tilkynningar á forsíðunni t.d: Til hamingju með afmælið Guðrún Ármannsdóttir.
  • Tilkynningakerfi sem birtist á forsíðu - Titill, dagsetning og úrdráttur af 4 nýjustu tilkynningum birtast á forsíðunni.
  • Aðgengi fyrir sjónskerta og lesblinda
  • Viðhorfskannanir -  t.d. könnun um starfsánægju ofl.
  • “Meðal annars” box á forsíðu - þar sem hægt er að tjá sig í stuttu máli 

     

Klapparstíg 25-27 / 6.hæð / 101 Reykjavík / IcelandTel +354 535 4900 / Fax + 354 535 4919 / info@veldi.is