
Annað veldi hefur undanfarin ár verið að þróa miðasölukerfi en það var tekið í notkun fyrir um tveimur árum síðan. Viðskiptavinir okkar sem hafa tekið upp á þeirri nýbreytni að selja miða í gegnum netið eru Salurinn í Kópavogi, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Borgarleikhúsið, Austurbær, Íslenska Óperan, Íslenski Dansflokkurinn, Listahátíð í Reykjavík, Smáralind sem og stakir viðburðir í Laugardagshöllinni. Enn fleiri eru að bætast í hópinn en ekki er unnt að tilgreina hverjir það eru að svo stöddu.
Virkni miðasölukerfisins Á sölustöðum
Miðasölukerfið gerir það kleift að hægt er að prenta miðann út fyrir framan viðskiptavininn í stað þess að prenta alla aðgangsmiðana í prentsmiðju og ferja þá í bunkum á sölustaði. Miðakerfið er tengt við gagnagrunn þannig að skrifstofan gæti fylgst með þróun sölunnar hverju sinni. Hve margir miðar séu seldir, hvað þeir seljast hratt, hvenær sé mesta ásókn í þá og hvað hver sölustaður selur mikið.
Á netinu Miðasala getur farið fram á heimasíðunni. Sú miðasala er beintengd við miðasöluna á sölustöðunum þannig að skrifstofan sjái alltaf hve margir miðar séu seldir hverju sinni hvort sem það er á sölustöðum eða á netinu. Netsalan getur dregið úr þeirri vinnu sem hefur farið í að afgreiða hvern einasta miða út í hönd á sölustöðunum.
Fullborga miðann á netinu Kerfið býður upp á þann möguleika að kúnninn greiði fyrir aðgangsmiðann til fullnustu á netinu. Þetta er gert í gegnum ‘secure’ slóð þar sem að viðskiptavinurinn gefur upp kortanúmer og borgar miðann beint. Það eina sem hann þarf að gera út frá því er að nálgast miðann á einhvern hátt, en það er útfærsluatriði hverju sinni.
Prenta miðann sjálfur Einfaldast er að kúnninn prenti miðann út heima hjá sér ef viðkomandi á prentara. Miðinn prentast þá út með tölvurönd. Við innganginn á uppákomu les ákveðið tæki tölvuröndina og gesturinn kemst inn, einfaldara getur það ekki verið. Þetta fyrirkomulag reyndist vel á frumsýningu kvikmyndar Hrafns Gunnlaugssonar “Opinberun Hannesar” þar sem að skanni las hvern einasta miða sem kom inn.
Viðskiptavinir geymdir í gagnagrunni Á miðasölukerfinu er hægt að fylgjast með persónulegum upplýsingum notanda svo framalega sem lög leyfa. Þannig er hægt að geyma í gagnagrunni upplýsingar um þá sem kaupa sér miða í miðasölukerfinu og hægt að kanna aðgangsmynstur fólks úr öllum áttum á öllum aldri.
Góð lausn til lengri tíma litið.
Sem stendur hefur Annað Veldi teiknað upp flesta áhorfendasali landsins yfir á tölvutækt form. Þannig að ef viðskiptavinurinn pantar sér miða í gegnum netið getur hann jafnvel átt möguleika á því að sjá hvar hann situr nákvæmlega í salnum.
Ekkert nema kostir Kostirnir við miðasölukerfi Annars Veldis er töluverð hagræðing hjá fyrirtækjum sem mun nýtast til framtíðar. Aðgengið að kerfinu er auðvelt og ef uppákoma er í vændum þá er lítið mál fyrir starfsmann viðkomandi fyrirtækis að stofna nýjan “atburð” og velja í hvaða sal hann er sýndur en þá eru allar upplýsingar til staðar um fjölda sæta og mynd af þeirri sætaskiptan sem er á viðkomandi sal. Þá er hægt að hefja miðasölu samdægurs ef notaðir eru venjubundnir aðgangsmiðar. Ef aftur á móti þarf að prenta auglýsingu aftan á miðana þá þarf að prenta það sér.