
Rio.is er pöntunarkerfi fyrir vörur og þjónustu sem ætlaði er að senda heim til viðskiptavina. Kerfið styður tvenns konar pöntunarferli, annað hvort í gegnum símasölu eða í gegnum internetið. Inní kerfið eru sett vörur fyrirtækja/veitingahúsa þar sem vörurnar eru skráðar í yfirflokka og undirflokka. Þegar að símasala hefur átt sér stað og gengið hefur verið frá pöntun tekur umsjónarmaður pantana viðpöntuninni og skráir bílstjóra á hana í gegnum umsjónaskjá. Bílstjóri getur síðan uppfært stöðu pantana í gegnum farsíma þegar að líður á ferlið, s.s. vara komin um borð og vara komin á áfangastað.
Viðskiptasaga viðskiptavinar heldur sér í kerfinu og er því hægt að sjá hvað ákveðnir viðskiptavinir hafa verið að panta og er það góður kostur ef hann vill t.d. panta það sama og síðast en man ekki hvað það var.
Rio.is býður uppá nákvæm uppgjör, hvort það er fyrir ákveðna daga, veitingahús eða sendla og er hægt að “exporta” þeim gögnum beint yfir á excel form.