Prófanir
Prófanir á nýju vefsvæði frá Öðru veldi ehf er tvenns konar
1. Með augum umsjónarmanns
Vefsíðan er prófuð áfram út frá þeim aðgerðum sem þarf að framkvæma á viðkomandi vefsvæði. Farið er í gegnum lista af öllum þeim aðgerðum sem hægt er að framkvæma bæði út frá grunnkerfi CurioWeb sem og kerfiseiningum viðkomandi vefsvæðis. Auk þess notast við upplýsingagjöf sem síðan gefur t.d. teljari, aðgerðalisti, notendalisti, stillingar ofl. Þannig hefur allar aðgerðir verið framkvæmdar áður en viðskiptavinur fær vefsíðuna í hendurnar.
2. Með augum gests á vefsíðu
Farið er inn á vefsíðuna og flakkað um forsíðu og undirsíðu. Leitast er við að nýta alla þá virkni sem er til staðar og leitað að hlutum sem betur mættu fara. Farið er í öll eyðublaðaform og þau fyllt út. Skoðað er skráning efnis út frá því hvernig það var skráð inn í CurioWeb. Athugað með virkni bannerakerfsins og athugað hvort réttar upplýsingar séu á vefsíðunni.
3. Umsjónarmaður kerfisins
Þá kemur síðan í hendur umsjónarmanns og þá er sérstök athygli lögð á að umsjónarmaður hefi störf við síðuna sem fyrst og gera þær aðgerðir sem möguleiki er að framkvæma.