Ellingsen og Evró hafa verið sameinuð undir nafninu Ellingsen. Samhliða því var farið út í að koma með nýtt merki, nýtt húsnæði og svo nýja heimasíðu en sú vinna var í höndum Annars veldis. Á heimasíðunni gefur að líta vörulista Ellingsen sem er orðinn stór og mikill eftir sameininguna. Auk þess er þar nákvæmur listi yfir tjaldstæði landsins og helstu upplýsingar um þau auk upplýsinga fyrir veiðimenn. Helsta nýjung síðunnar er nákvæmt veðurkort sem uppfærist reglulega.