Fornbókaverslunin Bókin hf var stofnuð í Reykjavík árið 1964 og er því elsta starfandi fyrirtækið á þessu sviði. Fyrrum eigendur Bókarinnar hf seldu fyrirtækið til Bókavörðunnar ehf árið 1998 og hefur reksturinn verið sameinaður að nokkru leyti, en þó haldið formlegum aðskilnaði. Nú hyggst Bókin hf. Hasla sér völl á markaðnum á ný og sérhæfa sig í sölu á bókum á netinu, hérlendis og erlendis. Verslunin sérhæfir sig í þjónustu við Íslenska bókasafnara sem og bókasafnara og söfn erlendis.
Á heimasíðunni gefst viðskiptavinum kostur á að skoða bækur sem eru til sölu í versluninni að Klapparstíg 25-27 og panta þær beint af netinu.