Einkarekni skólinn Ísaksskóli er komin með nýja heimasíðu sem er sett upp og hönnuð af Öðru veldi ehf þar sem notast er við vefumsjónarkerfið CurioWeb 3.0. Um er að ræða bjarta og skemmtilega síðu fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér skólann og starfsemi hans. Auk þess er um að ræða innranet fyrir starfsmenn og foreldra barna sem sækja skólann. Þar er að finna nánari upplýsingar um starfsemina, viðburðardagatal, myndagallerý og margt fleira. Við óskum Ísaksskóla til hamingju með nýjann vef sem mun bæði nýtast foreldrum, börnum og kennurum til framtíðar. Vefurinn er á slóðinni www.isaksskoli.is