Annað veldi vann að nýrri og endurbættri útgáfu af heimasíðu GB ferða. GB ferðir er ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í golfferðum, skíðaferðum og borgarferðum. Ferðirnar eru í boði allt árið um kring hvort sem fólk vill skella sér á skíði til Aspen í byrjun næsta árs eða fljúga úr snjókomunni á Íslandi til hlýrri landa til að stunda golf.
Á vefsíðunni er að finna upplýsingar um hina ýmsu áfangastaði, bóka sér ferð, skrá sig í netklúbb eða lesa nýjustu fréttir af GB ferðum, svo eitthvað sé nefnt.