Flugfreyjufélagið

Flugfreyjur Íslands sem hafa verið viðskiptavinir Annars veldis ehf til margra ára hafa nú fengið nýjan vef í CurioWeb 3.0 sem er nýtt vefumsjónarkerfi fyrirtækisins en síðan þeirra er á slóðinni www.ffi.is. Um er að ræða flóknasta vefinn sem settur hefur verið upp í nýja kerfinu þar sem um er að ræða bæði ytra net og innranet. Ytra netið er einkum ætlað til upplýsingar en Innra netið er ætlað þeim fjöldamörgum flugfreyjum og flugþjónum sem starfa á Íslandi í dag. Á innra netinu er spjallborð, myndagallerí og flýtikerfi fyrir áfangastaði flugfélagana. Flugfreyjur og flugþjónar hafa einnig aðgang að sínum persónulegu upplýsingum sem uppfærast um leið í félagaskránni. Auk þess er hægt að hafa mynd sem einkennir viðkomandi sérstaklega á lifandi spjallborði. Hönnun: Orri Guðjónsson Forritun: Sigþór Ingi Sigþórsson

Dags: 27.9.2006

Laugarvegur 25 / 3.hæð / 101 Reykjavík / IcelandTel +354 535 4900 / Fax + 354 535 4919 / info@veldi.is