Eignamiðlun ehf hefur opnað nýtt vefsvæði og valið vefumsýslukerfið CurioWeb til að stjórna vefnum. Það var Arnar Ólafsson sem að sá um hönnun á útliti vefsins og forritun var í höndum Sindra Más Finnbogasonar. Einnig var sett upp tenging við söluskrá Eignamiðlunar og mögulegt er að leita að fasteignum á vefnum eftir skilyrðum sem notandinn setur fram. Við uppsetningu á vefnum var mikil áhersla lögð á stílhreint útlit sem passar við nýja ímynd fyrirtækisins og gera vefinn sem þægilegastan í notkun.
Eignamiðlun ehf er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi stofnuð árið 1957. Hjá fyrirtækinu starfa nú 12 manns. Fimm starfsmenn eru löggiltir fasteignasalar, þrír lögfræðingar og einn sérlærður matsmaður. Starfsfólk Eignamiðlunar býr yfir mikilli reynslu og sérþekkingu á sviði fasteignaviðskipta.