Ingibjörg Hauksdóttir mun taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ 14. janúar næstkomandi. Ingibjörg er fædd í Reykjavík 8. desember 1957. Hún lauk hjúkrunarprófi frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1981 og síðan BS- prófi í hjúkrunarfræði með áherslu á sálgæslu frá Háskóla Íslands. Auk þess hefur hún sótt fjölmörg námskeið tengd stjórnun og mannrækt. Ingibjörg hefur gegnt ýmsum störfum í gegnum tíðina og ber þar helst að nefna störf hennar á heilbrigðissviði sem hjúkrunarfræðingur, s.s. á Heilsugæslu Garðabæjar, Vífilsstaðaspítala, í grunnskólum bæjarins og á Landspítala–Háskólasjúkrahúsi. Hún hefur víðtæka reynslu í umönnun aldraðra, bæði hérlendis og erlendis, og hefur lagt sig fram um að kynna sér málefni þeirra sérstaklega. Þá hefur hún einnig starfað við ferðamál og sinnt fararstjórn, bæði hér á landi og erlendis. Nú starfar hún sem hjúkrunardeildarstjóri á bæklunardeild Landspítala- háskólasjúkrahúsi.