Annað veldi ehf hefur lokið við hönnun og forritun á nýrri heimasíðu fyrir Sigur-rós www.sigur-ros.is. Síðan fór í loftið mánudaginn 12. september í tilefni af útkomu nýrrar geisladiskar hljómsveitarinnar Takk. Platan er fjórða eiginlega hljóðversplata Sigur Rósar. Sveitina skipa Jón Þór Birgisson, Kjartan Sveinsson, Georg Hólm og Orri Páll Dýrason. Mikil eftirvænting hefur verið fyrir plötunni en sem dæmu um ásókn í hana seldust 250 þúsund fyrirfram pantanir hjá netsölunni Amazon.com. Egill Harðar sá um hönnun en Björn Hr. Björnsson sá um forritun.