Verslunin selur flott föt og fylgihluti handa börnum af báðum kynjum frá fæðingu og til sex ára aldurs. Meðal þeirra vörumerkja sem verslunin selur eru Glugbaby, Imoga, Milk on the Rocks og Oeuf. Vörurnar verða einvörðungu til sölu á www.gjugg.is
Á vefsíðunni er hægt að skoða niðurflokkaða lista af vörunum, lesa blogg frá fyrirtækinu og senda fyrirspurn. Hægt er að skoða vöruna flokkaða eftir aldri, stærð, vörumerki, kyni, tegund, útsöluvöru og nýjum vörum. Einnig er mögulegt að skoða og kaupa samsetningar sem eru nokkrar flíkur og/eða fylgihlutir seldir í einum pakka. "Karfan mín" gerir viðskiptavinum kleift að safna mörgum mismunandi vörum á þar til gert svæði á síðunni áður en gengið er frá greiðslu.
Greiðslur í vefverslun fara í gegnum örugga greiðslugátt sem verndar rétt og persónuupplýsingar viðskiptavinar en auk þess auðveldar það vefstjóra vinnu sína. Vefstjóri gjugg.is hefur fulla stjórn á vefsíðunni og vefversluninni með CurioWeb vefumsjónarkerfinu og CurioShopping vefverslunarkerfinu frá Öðru Veldi ehf.