Surviving Iceland

Vefsíðan er hugsuð til gagns og gamans fyrir erlenda bakpokaferðalanga sem leggja leið sína til Íslands en hafa takmörkuð fjárráð. - Gestir síðunnar geta skoðað öll tjaldsvæði á landinu eftir svæðum eða í stafrófsröð og upplýsingar um hvert og eitt þeirra. Verið er að vinna í að koma upp sams konar listum yfir farfuglaheimili og bændagistingar í landinu. Einnig er hægt að skoða bari landsins í svipuðum lista. Gestir geta svo búið til aðgang að síðunni og með honum geta þeir spjallað á þar til gerðu spjallsvæði, gefið tjaldsvæðum og börum einkunn og umsögn og sent skilaboð á aðra notendur. Viðburðardagatal heldur utan um hina ýmsu atburði sem eiga við þennan tiltekna markhóp og TIPS hlutinn samanstendur af skemmtilegum og hagkvæmum ráðum og fróðleik um Ísland sem gætu nýst tilvonandi ferðalöngum. Notendur geta einnig sent inn ráð og þannig lagt sitt af mörkum til að hjálpa öðrum sem hafa hug á að ferðast til Íslands.

Dags: 1.5.2009

Laugarvegur 25 / 3.hæð / 101 Reykjavík / IcelandTel +354 535 4900 / Fax + 354 535 4919 / info@veldi.is