Vélasalan ehf

Á vefsíðunni er hægt að lesa upplýsingar um fyrirtækið, starfsemi þess og starfsmenn. Einnig er hægt að lesa fréttir frá fyrirtækinu allt aftur til ársins 2005 og skoða tilboð og fl sem í boði er. Allar vörur Vélasölunnar eru svo snyrtilega skipulagðar niður í tegundir og undirtegundir þannig að auðvelt er að finna það sem viðskiptavinurinn er að leita að. Þegar verið er að skoða tiltekna vöru er svo hægt að senda upplýsingarnar um hana sem tölvupóst á vin og senda fyrirspurn á fyrirtækið varðandi þessa tilteknu vöru. Öll vörumerki sem Vélasalan er með er hægt að skoða í lista með lógói viðkomandi fyrirtækis, tengil á vefsíðu þess og möguleika á að skoða allar vörur frá því fyrirtæki í lsita á síðunni. Einnig er hægt að hafa samband við fyrir tækið í gegnum þar til gerða síðu og senda ábendingu.

Dags: 26.6.2009

Klapparstíg 25-27 / 6.hæð / 101 Reykjavík / IcelandTel +354 535 4900 / Fax + 354 535 4919 / info@veldi.is