EWLA eru mjög virk og öflug félagasamtök kvennlögfræðinga í Evrópu. Samtökin koma víða við og þá sérstaklega í jafnréttismálum og öðrum málum er viðkoma réttindum kvenna í Evrópu.
Á vefsíðunnu er m.a. hægt að skoða youtube myndbönd, lesa fréttir frá félaginu og öðrum fréttamiðlum, Skrá sig sem meðlim í félagið og í gagnagrunn félagsins, skoða meðlimalista eftir löndum, skoða viðburði sem framundan eru hjá félaginu, lesa viðtöl og greinar og taka þátt í könnun. Meðlimir félagsins geta skráð sig inn á lokað svæði þar sem þeir geta tekið þátt í umræðum á lokuðu spjallborði, breytt upplýsingum um sig á vefsíðunni og skoðað upplýsingar frá félaginu sem eru eingöngu fyrir meðlimi.